Læknirinn í Englaverksmiðjunni

Ásdís Halla Bragadóttir

3,990 ISK
3,990 ISK

Þegar Ásdís Halla Bragadóttir fór að forvitnast um fjölskyldu blóðföður síns sem hún kynntist á fullorðinsárum var fátt um svör þegar hún spurðist fyrir um einn mann: Dr. Moritz Halldórsson. Af hverju stafaði þessi þögn um íslenskan lækni sem starfaði í Kaupmannahöfn og Vesturheimi? Forvitni hennar var vakin.

Eftir heimildaleit í fjórum löndum tókst Ásdísi Höllu að svipta hulunni af ævintýralegu lífshlaupi manns sem átti sér stóra drauma og fjölskylduleyndarmálum sem aldrei áttu að verða afhjúpuð. Inn í söguna fléttast mestu fjöldamorð í sögu Danmerkur, sjálfstæðisbarátta Íslendinga, Vesturferðir, helstu ráðamenn þjóðarinnar – og Kristján níundi Danakonungur.

Hér segir Ásdís Halla Bragadóttir loksins magnaða og áhrifamikla sögu dr. Moritz Halldórssonar læknis. Hún hefur áður skrifað ævisögurnar Tvísaga og Hornaugasem báðar urðu metsölubækur og hlutu einróma lof.

„Þetta er heillandi saga – algjörlega. Og var manni hulin. Þú ert að leiða okkur inn í nýjan heim.“ Egill Helgason, Kiljunni

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Læknirinn í Englaverksmiðjunni

Læknirinn í Englaverksmiðjunni

3,990 ISK
3,990 ISK