Leiðarvísir hótelstjóra að morði
Erlendur Arason
📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim.
🚚 Sendum frítt í póstbox ef pantað er fyrir meira en 10.000 kr.
Ekki er allt gull sem glóir!
Gestirnir hafa ekki hugmynd um hvað gerist bak við tjöldin á einu fínasta hóteli Reykjavíkur. Hvers vegna kemur til dæmis heimilislaust fólk að hótelinu á köldum vetrarnóttum meðan gestirnir eru í fastasvefni?
Þegar Torfi er óvænt hækkaður í tign á hótelinu með myndarlegri launahækkun finnst honum hann hafa dottið í lukkupottinn – þangað til hann fær skipun um að láta lík manns, sem hefur verið myrtur á hótelinu, hverfa án þess að nokkur verði þess var.
Torfi fær ekkert að vita hvað býr að baki og er ráðlagt að spyrja einskis. Þegar lögreglan fer hins vegar að spyrja óþægilegra spurninga finnst honum að hann verði að grafast fyrir um hvað sé á seyði.
Hann þráir að snúa aftur til síns tilbreytingarlitla daglega lífs en þegar fjölskyldu hans er ógnað verður ekki aftur snúið ...
Fyrsta bókin í æsispennandi þríleik eftir Erlend Arason þar sem bregður fyrir litríkum karakterum og einstakri kímnigáfu. Bókin kemur út samtímis á Íslandi og í Bretlandi.
Deila

Af hverju Salka?
Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.
Þú skoðaðir líka
-
Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!
Leiðarvísir hótelstjóra að morði