Leikskólinn minn
Hrefna Marín Sigurðardóttir
📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim.
🚚 Sendum frítt í póstbox ef pantað er fyrir meira en 10.000 kr.
Samverustund er bókasería fyrir yngsta aldurshópinn. Markmið bókanna er einfalt. Þegar börn eru umvafin kærleik og nánd, fá alla okkar athygli og tíma, skapast mikilvægustu stundir barnæskunnar.
Bókaserían fangar raunverulegt umhverfi íslensks barns út frá hversdagsleika þess. Hver opna leikur við lesandann með undurfögrum vatnslitamyndum.
Leikskólinn minn hjálpar nýjum leikskólabörnum að aðlagast því nýja umhverfi. Bókin opnar á spurningar, samtöl og jafnvel söng sem snúa að leikskóla barnsins. Í þessari bók er verið að æfa og örva málskilning barnsins og þar með málþroska. Yngsti aldurshópurinn vill hafa þetta einfalt og allt snýst þetta um eitt. Samverustund með okkar besta fólki. Þetta er hinn raunverulegi leikur og kveikjan að lestraráhuga barna.
Deila

Af hverju Salka?
Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.
Þú skoðaðir líka
-
Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!
Leikskólinn minn