Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk
Uppselt

Leitin að svarta víkingnum

3,990 ISK

Höfundur Bergsveinn Birgisson

Þessi vara er ekki fáanleg eins og er

Einn leyndardómur íslenskra fornsagna eru örstutt brot um 'svartleitan' mann sem þar
bregður fyrir Í Geirmund heljarskinn. Hann er sagður dökkur og ljótur, með mongólska andlitsdrætti af konunglegum uppruna, sagður 'göfgastur landnámsmanna' og ríður um sveitir Íslands með áttatíu vígamenn, og á mörg stórbú þar sem hann heldur mörg hundruð þræla. En hver var Geirmundur heljarskinn? Af hverju er engin saga varðveitt af honum og af hverju hefur hann nánast fallið í gleymsku? Hér tekur Bergsveinn Birgisson lesandann með sér í heillandi ferðalag um forna tíma og fjarlæg lönd Í en einnig á slóðir Geirmundar við Breiðafjörð og á Vestfjörðum. Með því að rýna ískjöl, fornleifar og nýta nýjustu tækni kviknar fortíðin til lífs og púslin raðast saman í spennandi frásögn, sem er skrifuð af þekkingu, skáldlegum innblæstri og stílgáfu. Fyrsta útgáfa af Leitinni að svarta víkingnum kom út á norsku og hlaut frábærar
viðtökur. Bergsveinn er doktor í norrænum fræðum.