Lesbíur óskast
Elísabet Thoroddsen
📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim.
🚚 Sendum frítt í póstbox ef pantað er fyrir meira en 10.000 kr.
Þegar Hlín vaknar skelþunn á miðjum laugardegi rifjast upp fyrir henni að hún á von á fimm bláókunnugum lesbíum í mat um kvöldið. Hlín er að skilja við eiginmann sinn og nýflutt í litla kjallaraholu sem er í rúst. Hún kann ekki að elda, hefur ekki efni á víni með matnum og efast um allar ákvarðanir sem hún hefur tekið í lífinu. Svo kann hún ekkert að tala við lesbíur.
Í bókinni fylgjum við Hlín í gegnum skrautlegt matarboð þar sem hún mátar sig við lesbíuheiminn og horfist í augu við eigin fordóma. Í framhaldinu reynir hún að koma lífi sínu á réttan kjöl og skoðar fortíð sína út frá nýju sjónarhorni.
Hingað til hefur Hlín lifað samkvæmt hinu gagnkynhneigða viðmiði án þess að hugsa út í hvað hún raunverulega vill. Núna stendur hún frammi fyrir nýjum áskorunum og þarf að læra að hlusta á sjálfa sig. Samhliða því sem Hlín skoðar fortíð sína og fyrri sambönd sekkur hún dýpra og dýpra, heimsmynd hennar hrynur, kvíðinn tekur yfir og skömmin flýtur upp á yfirborðið.
Deila

Af hverju Salka?
Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.
Þú skoðaðir líka
-
Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!
Lesbíur óskast