Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk
Litla leynivíkin í Króatíu
4,490 ISK
Höfundur Julie Caplin
Siglið til hinnar fögru Króatíu og upplifið sumarsól, skínandi tyrkisbláan sjóinn og ástarævintýri sem vara að eilífu ...
Þegar hinni jarðbundnu Maddie er boðin sumarvinna á snekkju getur hún ekki sagt nei. Jú, hún mun þurfa að þjóna ríka fólkinu en eyjahopp á Adríahafi mun sannarlega bæta það upp.
Svo er hún líka spennt að kynnast Nick, bróður Nínu, bestu vinkonu hennar, sem er meðal gestanna um borð. Þau ná hins vegar alls ekki saman og Maddie á erfitt með að trúa að hinn sjálfumglaði Nick geti verið skyldur Nínu.
En í lítilli, ægifagurri leynivík kemur í ljós að Maddie og Nick eiga kannski meira sameiginlegt en virtist við fyrstu kynni ...