Ljóðasafn - Gerður Kristný

Gerður Kristný

6,290 ISK
6,290 ISK 0 ISK

Í fyrstu ljóðabók sinni, Ísfrétt, sló Gerður Kristný einkennandi tón þar sem meitlað orðfæri og stuðlar minntu á forna bragarhætti. Knöpp erindi miðluðu sterkum tilfinningum ástar, haturs og söknuðar. Ljóðin hafa verið hryggjarstykkið í rithöfundarferli Gerðar og fyrir þau hefur hún hlotið margvíslegar viðurkenningar. Fyrir ljóðabálkinn Blóðhófni, þar sem efnið er sótt í Eddukvæðið Skírnismál, hlaut Gerður Kristný Íslensku bókmenntaverðlaunin og var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs.

Ljóðasafnið geymir allar ljóðabækur Gerðar fram til 2014: Ísfrétt, Launkofa, Höggstað, Blóðhófni og Strandir en sumar þeirra hafa verið ófáanlegar árum saman.

Guðrún Nordal ritar formála.

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Ljóðasafn - Gerður Kristný

Ljóðasafn - Gerður Kristný

6,290 ISK
6,290 ISK 0 ISK