Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Ljóðaúrval - Jóhannes úr Kötlum

4,990 ISK

Höfundur Silja Aðalsteinsdóttir, Jóhannes úr Kötlum

Skáldið Jóhannes úr Kötlum (1899-1972) lifði mikla umbrotatíma í sögu og bókmenntum og ef velja ætti eitt skáld sem fulltrúa 20. aldarinnar á Íslandi yrði það næsta óhjákvæmilega hann. Ekkert íslenskt skáld sýnir eins nákvæmlega þróun ljóðlistarinnar hér á landi og þessi fjölhæfi og afkastamikli höfundur sem færði þjóðinni svo mörg einstæð og áhrifamikil ljóð.

Jóhannes úr Kötlum hóf feril sinn sem nýrómantískt skáld en á kreppuárunum var hann í broddi fylkingar róttækra skálda. Í umróti stríðsára og eftirstríðsára gerði hann tilraunir með frjálsa bragarhætti og endurnýjaði form sitt af listfengi og frumleika. Loks náði hann í alþjóðlega róttæka bylgju á sjöunda áratugnum og stóð á nýjum hátindi ferils síns þegar hann féll frá.

Í ljóðaúrvali Jóhannesar(2010) eru ljóð úr öllum bókum hans fyrir fullorðna, bæði frumsamin og þýdd, sem gefa breiða mynd af margslungnum ljóðheimi skáldsins. Silja Aðalsteinsdóttir sá um útgáfuna og ritar inngang.