Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk
Uppselt

Ljótur leikur

1,989 ISK

Höfundur Angela Marsons

Þessi vara er ekki fáanleg eins og er

Bækur Angelu Marsons um lögreglukonuna Kim Stone hafa slegið í gegn í Bretlandi og hér er komin önnur bókin um hinn grjótharða lögreglufulltrúa. Því meiri sem illskan er, þeim mun hættulegri verður leikurinn …

Þegar dæmdur nauðgari er stunginn til bana eru rannsóknarfulltrúinn Kim Stone og liðið hennar kölluð á vettvang til að leysa málið í snatri. Fleiri skuggalegir atburðir eiga sér stað og það verður æ ljósara að eitthvað enn óheillavænlegra liggur að baki. Eftir því sem rannsókninni vindur áfram og Kim er einnig að reyna að ljóstra upp leyndarmálum hrings barnaníðinga, verður hún smám saman skotmark brjálaðs einstaklings sem fæst við sjúklegar tilraunir.

Rannsóknarfulltrúinn þarf að taka á öllu sínu í baráttunni við hættulegan félagsblindingja sem virðist þekkja allar veikar hliðar hennar. Þegar fórnarlömbunum fjölgar verður Kim að grafa lengst niður í fortíð sína til að stoppa morðingjann. Í þetta sinn er baráttan persónuleg.