Lofgjörð til Katalóníu

George Orwell

4,290 ISK
4,290 ISK 0 ISK
Í þessari bók lýsir breski rithöfundurinn George Orwell reynslu sinni úr borgarastyrjöldinni á Spáni þar sem hann barðist sem sjálfboðaliði með sveitum sósíalista á árunum 1936–1937. Sú reynsla mótaði stjórnmálaskoðanir hans það sem eftir var ævinnar og gerði hann að hörðum andstæðingi alræðis. Í bókinni kemur glöggt fram ástríðufull mannúðarhyggja Orwells sem einkennir öll hans verk.  Hann lýsir með beisku innsæi hinum björtu vonum og kaldrifjuðu svikum sem einkenndu þessa óreiðukennda tíma á Spáni; byltingarandanum í Barcelóna, hugrekki spænskrar alþýðu, hryllingnum og glundroðanum á vígstöðvunum og grimmdarlegum launráðum manna sem töldust vera bandamenn hans.
Guðmundur J. Guðmundsson íslenskaði og ritar eftirmála þar sem hann setur frásögn Orwells í sögulegt samhengi.

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Lofgjörð til Katalóníu

Lofgjörð til Katalóníu

4,290 ISK
4,290 ISK 0 ISK