Lóuþrenna - Grísafjörður, Héragerði og Rækjuvík

Lóa H. Hjálmtýsdóttir

6,990 ISK
6,990 ISK 0 ISK

Þrjár bráðskemmtilegar bækur eftir Lóu Hlín Hjálmtýsdóttur í einum pakka!

Grísafjörður

Tvíburarnir Inga og Baldur eru komnir í sumarfrí. Á dagskránni er að drekka kókómalt, glápa á teiknimyndir og slappa af með tilþrifum. Fyrirætlanir þeirra virðast ætla að fjúka út í veður og vind þegar Albert, nágranni þeirra af efstu hæðinni, birtist óvænt í heimsókn hjá þeim. Honum er augljóslega mikið niðri fyrir. Systkinin hafa enga þolinmæði gagnvart þessari hindrun í vegi þeirra en eftir því sem Albert segir þeim meira frá vandamáli, sem hann stendur frammi fyrir, er forvitni þeirra vakin.

Héragerði

Tvíburarnir Inga og Baldur eru alveg að komast í páskafrí. Framundan sjá þau fyrir sér talsvert súkkulaðiát og almenna flatmögun en í ljós kemur að þau eiga að gista hjá ömmu sinni sem er nýflutt til landsins í hið dularfulla byggðarlag Héragerði. Inga tekur fréttunum fagnandi enda sýna útreikningar hennar fram á að amman hlýtur að skulda þeim páskaegg langt aftur í tímann. Baldur er ekki jafnspenntur og kvíðahnútur gerir sig heimakominn í maga hans. Það kemur þó fljótt í ljós að ferðalagið felur í sér alls konar ævintýri; riddara í næsta garði, strætóferð í prumpufýlu, nýja vini og meira að segja nýja fjölskyldumeðlimi.

Rækjuvík

Eftir langan, dimman vetur og vægast sagt glatað vor, er sólin loksins mætt til Reykjavíkur. Tvíburasystkinin Inga og Baldur eru komin í sumarfrí með öllu sem því fylgir og líka ýmsu óvæntu, eins og björgunarleiðangri fyrir úthafsrækju. Það er einmitt í þeim leiðangri sem forvitni þeirra er vakin þegar þau finna dularfullt flöskuskeyti sem marar í hálfu kafi í sjónum nálægt heimili þeirra. Þau ákveða að rannsaka málið á sinn einstaka hátt og ævintýri hversdagsins hefjast! 

 

Allar þrjár bækurnar hafa hlotið tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna!

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Lóuþrenna - Grísafjörður, Héragerði og Rækjuvík

Lóuþrenna - Grísafjörður, Héragerði o...

6,990 ISK
6,990 ISK 0 ISK