Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk
Uppselt

Lubbi finnur málbein

4,490 ISK

Höfundur Þórarinn Eldjárn, Þóra Másdóttir, Eyrún Ísfold Gísladóttir, Freydís Kristjánsdóttir

Þessi vara er ekki fáanleg eins og er

Íslensku málhljóðin í brennidepli. Bókin um Lubba er hugsuð til málörvunar og hljóðanáms fyrir börn á aldrinum tveggja til sjö ára. Höfundar bókarinnar, Þóra Másdóttir og Eyrún Ísfold Gísladóttir, eru talmeinafræðingar og hafa áralanga reynslu af talþjálfun barna. Í bókinni nýtist sérfræðiþekking þeirra bæði börnum sem glíma við erfiðleika í máltöku og hinum sem læra málið án vandkvæða. Efnið stuðlar einnig að auðugri orðaforða og ýtir undir skýrari framburð.

Í bókinni er sérhvert málhljóð kynnt með stuttri sögu, skemmtilegri vísu eftir Þórarin Eldjárn og glæsilegum myndum eftir Freydísi Kristjánsdóttur.

Á diski sem fylgir prentuðu bókinni syngja börn úr Skólakór Kársness allar vísurnar við alþekkt lög. Í hljóðbókinni fyrir appið sem er til sölu hér á vefnum er texti bókarinnar lesinn og lögin af disknum spiluð með.