Marginalía

Áslaug Ýr Hjartardóttir, Unnar Ingi Sæmundsson, Katrín Mixa, Vala Hauksdóttir

4,490 ISK
4,490 ISK 0 ISK

Mörgum árum eftir að leiðir þeirra skildu hittast íslenskufræðingurinn Styrkár og blaðakonan Garún í Eddu, nýju heimili handritanna og húsi íslenskunnar. Ljós flökta, hurðir opnast og lokast án sýnilegrar ástæðu og ógnandi nærvera gerir vart við sig. Skyndilega eru Styrkár og Garún læst inni og verða að vinna saman til að komast aftur út. Áður en hryllingurinn nær yfirhöndinni þurfa þau að horfast í augu við fortíðardraug sem þau töldu sig hafa kveðið niður fyrir fullt og allt.

Akademíska hrollvekjan Marginalía er samskotsverk fjögurra nema í ritlist við Háskóla Íslands og ritstýrt af nemendurm í hagnýtri ritstjórn og útgáfu.

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Marginalía

Marginalía

4,490 ISK
4,490 ISK 0 ISK