Matargatið

Gunnar Theodór Eggertsson, Linn Janssen

📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim.
🚚 Sendum frítt í póstbox ef pantað er fyrir meira en 10.000 kr.

6,490 ISK
6,490 ISK 0 ISK

Dag einn birtist dularfullt, lítið gat úti í garði og vekur undir eins forvitni Óla og Sissu. Gatið virðist gleypa í sig allt sem kemur nálægt því: steina og prik, sveppi, mjólkurfernu … og loks graðgar það í sig kisuna hans Óla! Þegar krakkarnir ætla að bjarga kisu kemur í ljós að þetta gráðuga gat leynir svo sannarlega á sér.

Matargatið er fyndin og fjörug saga með heimspekilegu ívafi, ætluð ungum lestrarhestum. Letrið er lesvænt og litmynd skreytir hverja opnu.
Gunnar Theodór Eggertsson er löngu búinn að skapa sér nafn fyrir frumlegar og ævintýralegar barnabækur. Hér tekur hann höndum saman við Linn Janssen, sem hefur slegið í gegn á síðustu árum með heillandi teikningum sínum, og útkoman er ekkert minna en dásamleg.

Af hverju Salka?

Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Matargatið

Matargatið

6,490 ISK
6,490 ISK 0 ISK