Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Meðgönguljóð - úrval

4,990 ISK

Höfundur Ýmsir

Á árunum 2012–2018 komu út á fjórða tug verka eftir upprennandi ljóðskáld undir merkjum Meðgönguljóða og var serían í fararbroddi mikillar vakningar í íslenskum ljóðaheimi. Auk þess sem efnt var til fjölbreyttra viðburða á vegum útgáfunnar leiddi hún saman ólíkar kynslóðir, en mörg af þekktustu skáldum landsins komu að ritstjórn bókanna.

Nafn Meðgönguljóða var sótt í nýyrði yfir takeaway-kaffi og kápur bókanna voru lengi auðkenndar með brotna kaffihringnum sem bollinn skilur eftir sig. Þetta safn inniheldur valin ljóð úr öllum bókum flokksins. Sjón og Arngunnur Árnadóttir ritar formála og Kári Tulinius, Valgerður Þóroddsdóttir, Kristín Svava Tómasdóttir og Þórður Sævar Jónsson rita eftirmála.