Meira sokkaprjón

Guðrún S. Magnúsdóttir

📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim.
🚚 Sendum frítt í póstbox ef pantað er fyrir meira en 10.000 kr.

7,990 ISK
7,990 ISK 0 ISK

Meira sokkaprjón inniheldur 74 prjónauppskriftir að alls kyns sokkum, allt frá agnarsmáum ungbarnasokkum upp í sokka fyrir fullorðna, bæði konur og karla. Við hönnun sokkanna var áhersla lögð á að hafa uppskriftirnar einfaldar og aðgengilegar og með nákvæmum útskýringum á þeim aðferðum sem eru notaðar. Byrjendur í sokkaprjóni geta því hæglega fundið uppskriftir í bókinni sem auðvelt er að fylgja.

Sokkarnir eru bæði einlitir og með skrautlegum munsturbekkjum svo allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Hér er því komin eiguleg bók með fjölbreyttum uppskriftum að sokkum sem nýtast allt árið um kring, í skólanum, útivistinni eða heima.
Guðrún S. Magnúsdóttir hefur áður sent frá sér vinsælar prjónabækur eins og til dæmis Sokkaprjón, Vettlingaprjón og Húfuprjón. Meira sokkaprjón er áttunda bók hennar.

Af hverju Salka?

Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Meira sokkaprjón

Meira sokkaprjón

7,990 ISK
7,990 ISK 0 ISK