Ljóðabókin Menn sem elska menn er hugleiðing um karlmennsku. Höfundur skoðar efnið í sögulegu og persónulegu ljósi, veltir fyrir sér vináttu og ást, hvernig tilfinningar mótast af hinu innra og ytra. Ljóðin eru í senn einlæg og margræð, fyndin og átakanleg. Bókin samanstendur af þremur heildstæðum bálkum en er bundin saman af þemum, myndmáli og rödd sem talar bæði til og við lesandann.