Mið-Austurlönd: fortíð, nútíð og framtíð
Magnús Þorkell Bernharðsson
Mið-Austurlönd – sem afmarkast af Egyptalandi í vestri, Íran í austri, Tyrklandi í norðri og Jemen í suðri – eru einhver mesti suðupottur okkar tíma og hafa raunar verið um áratugaskeið.
Nær daglega flytja fjölmiðlar þaðan stórfréttir sem yfirleitt snúa að stríðshörmungum, kvennakúgun, misskiptingu og neyð. Um leið hafa víglínurnar færst óþægilega nærri Vesturlöndum – hryðjuverk í nágrannalöndum okkar og straumur flóttafólks meinar okkur að loka augunum fyrir ástandinu.
Um leið er ljóst að ýmis vandamál Mið-Austurlanda eiga rætur í tíðum og víðtækum afskiptum Vesturlanda af þessum heimshluta í fortíð og nútíð. Fleira kemur þó til, enda er um fjölþætt og flókin mál að ræða.
Mið-Austurlönd eru á milli steins og sleggju þar sem íbúar þessa svæðis hafa á síðastliðnum hundrað árum beitt ýmsum aðferðum til að finna hinn gullna meðalveg hefðar og nútíma, sjálfstæðis og jafnréttis, ofbeldis og framfara, trúfrelsis og einstaklingsfrelsis.
Magnús Þorkell Bernharðsson, prófessor í nútímasögu Mið-Austurlanda við Williams College í Massachusetts og gistikennari við guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands, er einn helsti sérfræðingur okkar í sögu þessa svæðis. Hér fjallar hann um öll meginstefin í sögu Mið-Austurlanda á yfirvegaðan og aðgengilegan hátt.
Deila

Þú skoðaðir líka
-
Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!
Mið-Austurlönd: fortíð, nútíð og framtíð