Milli himins og hér
4,490 ISK
4,490 ISK
0 ISK
/
📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim
🚚 Áætlaður afhendingartími er 1 - 3 virkir dagar
Ljúflestrarbók ársins 2025 í Svíþjóð
Um bókina
Eftir átta mánuði verður Majlis loksins dáin.
Loksins er kannski óviðeigandi orðaval. Því í rauninni vill Majlis alls ekki deyja. Allra síst núna þegar Ronja dóttir hennar á von á barni og hún er að verða amma í fyrsta sinn. Nei, það var alls ekki svona sem hún hafði séð fyrir sér ævilokin. En þannig verður það að vera. Þegar Ronja hringir, stuttu eftir fæðingu dóttur sinnar, og segir að hún hafi hent svikulum eiginmanni sínum út breytist allt. Majlis ákveður að flytja inn til Ronju í Stokkhólmi og yfirgefa skóga Norður-Svíþjóðar þar sem hún hefur búið allt sitt líf. En hvernig á hún að fá dóttur sína til að sætta sig við hina örlagaríku ákvörðun sem hún hefur tekið? Og hvað gerist ef endalokin verða allt önnur en Majlis ímyndar sér?
Milli himins og hér er ljúf og hjartnæm skáldsaga um það sem við höfum ekki stjórn á í lífinu – og það sem verður stundum á vegi okkar þegar við eigum síst von á því. En þetta er líka saga um listina að taka lífinu opnum örmum, jafnvel þegar það tekur á sig óvænta mynd. Því stundum er það einmitt þegar við höldum að sögunni sé lokið sem allt byrjar. Milli himins og hér hefur slegið í gegn í heimalandinu Svíþjóð, hlotið fjölda viðurkenninga og fer nú sigurför um heiminn.
Friðrika Benónýsdóttir íslenskaði.
Deila

Af hverju Salka?
Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.
Þú skoðaðir líka
-
Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!
Milli himins og hér
4,490 ISK
4,490 ISK
0 ISK
/