Múmínálfarnir stórbók 1 - litlu álfarnir og flóðið mikla, Halastjarnar og Pípuhattur galdrakarlsins

4,990 ISK
4,990 ISK 0 ISK

📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim
🚚 Áætlaður afhendingartími er 1 - 3 virkir dagar

Litlu álfarnir og flóðið mikla – Halastjarnan – Pípuhattur galdrakarlsins

Allir þekkja múmínálfana, þessar stórskemmtilegu ævintýraverur sem hafa glatt ótal börn og fullorðna áratugum saman – í sjónvarpsþáttum, teiknimyndasögum, bíómyndum og ekki síst bókum.

Hér birtast tvær af sögunum ástsælu, Halastjarnan og Pípuhattur galdrakarlsins, en jafnframt allra fyrsta sagan af múmínálfunum, Litlu álfarnir og flóðið mikla, sem aldrei fyrr hefur komið út á íslensku. Þar segir frá leit múmínsnáðans og mömmu hans að múmínpabba eftir að allt fer á flot. Þau eignast nýja vini og lenda í ótrúlegum ævintýrum sem halda svo áfram í hinum sögunum: Halastjarna stefnir á Múmíndal, múmínsnáðinn og félagar fara í leiðangur upp í Einmanafjöll og eignast fleiri vini – og pípuhattur galdrakarlsins finnst og stefnir öllu í voða.

Tove Jansson skrifaði sögurnar um múmínálfana og teiknaði myndirnar. Fyrsta sagan kom út 1945 en Múmíndalurinn varð fullmótað sögusvið í Halastjörnunni. Bækurnar hafa notið gífurlegra vinsælda og verið þýddar á yfir 40 tungumál.

Steinunn Briem þýddi Halastjörnuna og Pípuhatt galdrakarlsins. Þórdís Gísladóttir þýddi Litlu álfana og flóðið mikla.

Af hverju Salka?

Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Múmínálfarnir stórbók 1 - litlu álfarnir og flóðið mikla, Halastjarnar og Pípuhattur galdrakarlsins

Múmínálfarnir stórbók 1 - litlu álfar...

4,990 ISK
4,990 ISK 0 ISK