Múmínálfarnir stórbók 3 - Ósýnilega barnið, Eyjan hans Múmínpabba, Seint í nóvember

4,990 ISK
4,990 ISK 0 ISK

📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim
🚚 Áætlaður afhendingartími er 1 - 3 virkir dagar

Allir þekkja múmínálfana, þessar stórskemmtilegu ævintýraverur sem hafa glatt ótal börn og fullorðna áratugum saman – í sjónvarpsþáttum, teiknimynda-sögum, bíómyndum og ekki síst bókum.

Þessi bók geymir síðustu þrjár sögurnar um múmínálfana. Sjöunda og áttunda bókin hafa verið ófáanlegar árum saman: smásagnasafnið Ósýnilega barnið, þar sem margs konar háski steðjar að söguhetjunum, og Eyjan hans múmínpabba en þar finnst múmínpabba hann ekki vera til nokkurs gagns lengur svo hann flytur með fjölskylduna á eyðieyju langt úti í hafi. Níunda bókin, Seint í nóvember, birtist nú í fyrsta skipti á ís­lensku en hún gerist á meðan múmínfjölskyldan er á eyjunni. Þá koma hemúll, fillífjonka, Snúður, kaskurinn Þófti og Skari gamli í múmíndal í leit að múmínfjölskyldunni en finna ýmis­legt dýrmætt í hennar stað.

Rithöfundurinn, listmálarinn og teiknarinn Tove Jansson skapaði múmínálfana. Hún gerði um þá teiknimyndasögur, leikrit, myndskreyttar barna­bækur og skrifaði níu sögubækur. Nú eru þær loks allar fáanlegar á íslensku, í veglegum stórbókum.

Guðrún Jarþrúður Baldvinsdóttir þýddi Ósýnilega barnið, Steinunn Briem þýddi Eyjuna hans múmín­pabba og Þórdís Gísladóttir þýddi Seint í nóvember.

Af hverju Salka?

Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Múmínálfarnir stórbók 3 - Ósýnilega barnið, Eyjan hans Múmínpabba, Seint í nóvember

Múmínálfarnir stórbók 3 - Ósýnilega b...

4,990 ISK
4,990 ISK 0 ISK