Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Náðu tökum á kvíða, fælni og áhyggjum

3,790 ISK

Höfundur Sóley Dröfn Davíðsdóttir

Sjálfshjálparbók sem á erindi til allra sem vilja draga úr kvíða, streitu og áhyggjum í daglegu lífi.

Stór hluti fólks finnur reglulega fyrir kvíða og þriðji hver maður glímir við kvíðavandamál. Í bókinni eru veitt fljótvirk ráð vá sviði hugrænnar atferlismeðferðar sem borið hafa sérlega góðan árangur við kvíða.

Í fyrri köflum bókarinnar er veitt fræðsla um kvíðaviðbragðið og helstu birtingarmyndir kvíða, og gefst lesendum færi á að kortleggja kvíðann hjá sér. Farið er yfir viðbrögð sem viðhalda kvíða og útskýrt ríkulega með dæmum. Í síðari köflum bókarinnar eru veittar nákvæmari leiðbeiningar um hvernig sigrast megi á algengustu formum kvíða, svo sem kvíðaköstum, áhyggjum, þráhyggju og áráttu, fælni og félagskvíða.