Hröð heimsending um allt land

Psst... við erum líka bar!

Sendum frítt þegar verslað er fyrir meira en 10.000kr í vefverslun!

Öruggar greiðslur á netinu

Náðu tökum á þyngdinni

Sóley Dröfn Davíðsdóttir

4,490 ISK
4,490 ISK 0 ISK

Ertu í stöðugri baráttu við aukakílóin? Sveiflastu milli þess að halda í við þig og missa tökin á mataræðinu? Fyllistu vonleysi þegar þú ferð aftur í sama farið?

Fjölmargir eru í þessum sporum þrátt fyrir dugnað og löngun til að grennast. Í samfélaginu er hvatt til síaukinnar neyslu sem kemur sér illa því ásóknin í orkuríka fæðu er okkur eðlislæg. Þessi þörf magnast þegar við neitum okkur um mat í þeim tilgangi að grennast.

Með hugrænni atferlismeðferð má rjúfa vítahring megrunar og stjórnleysis með því að tileinka sér hugarfar og venjur sem markast af skilningi á þörfum líkamans. Það stuðlar að betri þyngdarstjórn, meiri vellíðan og sátt við eigin líkama. Hugarfarið er gleymda vopnið í baráttunni en jafnframt það öflugasta.

Sóley Dröfn Davíðsdóttir er forstöðusálfræðingur Kvíðameðferðarstöðvarinnar. Hún hefur lokið sérnámi í hugrænni atferlismeðferð og er með sérfræðingsviðurkenningu í klínískri sálfræði. Hún hefur áður sent frá sér bækurnar Náðu tökum á kvíða, fælni og áhyggjum, Náðu tökum á félagskvíða og Náðu tökum á þunglyndi.

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Náðu tökum á þyngdinni

Náðu tökum á þyngdinni

4,490 ISK
4,490 ISK 0 ISK