Næsti! Raunir heimilislæknis

Nina Lykke

3,990 ISK
3,990 ISK 0 ISK

Eftir að hafa verið heimilislæknir í tuttugu ár, hefur Elín fengið sig fullsadda af umkvörtunum og óhamingju fólks. Hún er líka búin að fá nóg af manninum sínum, skíðaáhugamanninum Axel, og hvítvínsglasið sem hún lætur æ oftar eftir sér til að slappa af eftir langan dag er orðið á stærð við gullfiskabúr.

Í kjölfar endurnýjaðra kynna við gamlan kærasta í gegnum Facebook, tekur Elín að brjóta upp mynstrið sem hún hefur ratað í á fullorðinsárum … til þess að standa svo í rjúkandi rústum.

Næsti! Raunir heimilislæknis er saga um djöfullegar afleiðingar sjálfsgagnrýninnar og þær dásemdir sem afneitunin hefur í för með sér. Þetta er þriðja skáldsaga Ninu Lykke, sem hlaut Norsku bókmenntaverðlaunin fyrir þessa bráðskemmtilegu sögu.

Bjarni Jónsson þýddi.

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Næsti! Raunir heimilislæknis

Næsti! Raunir heimilislæknis

3,990 ISK
3,990 ISK 0 ISK