Náhvít jörð

Lilja Sigurðardóttir

3,990 ISK
3,990 ISK

Á hvítum vetrarmorgni finnst yfirgefinn flutningagámur í Rauðhólum við Reykjavík. Þegar hann er opnaður blasir hryllingurinn við: fimm lífvana konur sem augljóslega hafa verið fluttar í þessum gámi yfir hafið. Hvernig getur svona lagað gerst og hverjir standa að baki þessari óhæfu?

Rannsóknarlögreglumennirnir Daníel og Helena mæta á vettvang og hefjast handa en á meðan sinnir Áróra, vinkona Daníels, öðru máli: Elín frænka hennar er í sambandi við rússneskan mann sem vill endilega að þau gifti sig en virðist hafa óhreint mjöl í pokahorninu …

Lilja Sigurðardóttir er einn vinsælasti spennusagnahöfundur landsins og bækur hennar hafa komið út víða erlendis. Hún hefur verið tilnefnd til breska Gullrýtingsins og í tvígang hlotið íslenska Blóðdropann og tilnefningu til norræna Glerlykilsins.

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Náhvít jörð

Náhvít jörð

3,990 ISK
3,990 ISK