Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Nikký og slóð hvítu fjaðranna

1,990 ISK 990 ISK

Höfundur Brynja Sif Skúladóttir

Nikký og slóð hvítu fjaðranna eftir Brynju Sif Skúladóttur er fyrsta bók höfundar. Veroníka, kölluð Nikký, er ellefu ára og býr með mömmu sinni í Reykjavík. Vorið er komið og þær mæðgur eru á leið til Sviss þar sem mamma Nikkýjar ætlar að láta gamlan leiklistardraum rætast. Nikký langar ekkert sérstaklega mikið með – en hún hefur vart stigið út á brautarstöðinni í Zürich þegar duldir hæfileikar hennar hrinda af stað ótrúlegri atburðarás. Hvernig í ósköpunum tengist draumurinn sem Nikký hefur dreymt síðan hún var lítil, staðháttum og fólki í Sviss, þar sem hún hefur aldrei komið áður? Brúin ... bláklæddi maðurinn með stingandi augun ... og hvítu fjaðrirnar? Eftir háskaleg ævintýri, þar sem Zak, hinn sautján ára vinur hennar er aldrei langt undan, uppgötvar Nikký hvar rætur hennar liggja. Hún lærir að beita dularfullum hæfileikum sínum og fær loksins botn í stóra spurningu sem hefur leitað á hana lengi. Myndir gerði Hjörleifur Skorri Þormóðsson. Níkký og slóð hvítu fjaðranna er fyrsta bók Brynju Sifjar Skúladóttur. Hún er fædd 1969 og er menntaður rekstrarfræðingur og markþjálfi. Brynja Sif býr nú í Svíþjóð og starfar við ritstörf og markþjálfun. Smelltu hér til að heimsækja Nikký á facebook