Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Nornin

4,990 ISK

Höfundur Hildur Knútsdóttir

Alma Khan veit ekki af hverju henni, óbreyttum nítján ára starfsmanni í baunahúsinu á Hellisheiði, er boðið starf í einkagróðurhúsi hinnar heimsfrægu Olgu Ducaróvu. Helst dettur henni í hug að það tengist eitthvað Kríu ömmu hennar, sem þekkir Olgu eftir alræmdan leiðangur þeirra til Mars. Þegar Alma kynnist svo hinni leyndardómsfullu Indru umturnast lífið endanlega. Árið er 2096 og náttúran óútreiknanleg. Gamli miðbærinn er afgirtur og þar standa fúin hús í flæðarmálinu. Eitt þeirra á amma Ölmu og enginn skilur hvers vegna það er henni svona mikilvægt.

Nornin er framhald Ljónsins sem hlaut Barnabókaverðlaun Reykjavíkur og var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.

Hildur Knútsdóttir hefur skrifað fjölda vinsælla ungmennabóka og hlotið mikið lof gagnrýnenda. Hún fékk Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir Vetrarhörkur, sem ásamt Vetrarfríi var tilnefnd sem ungmennabók ársins í Tékklandi.