Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Nýtt land utan við gluggann minn

3,690 ISK

Höfundur Theodor Kallifatides

Theodor Kallifatides yfirgaf Grikkland árið 1964 og fluttist til Svíþjóðar. Hann var 26 ára gamall og heillaðist af nýju landi og tungumáli sem hann náði fljótt undraverðum tökum á. Aðeins fáum árum síðar gaf hann út sína fyrstu bók og er nú í hópi þekktustu rithöfunda Svía.

Í þessari einstöku bók fjallar hann um uppruna sinn og stöðu eftir áratuga búsetu í nýja landinu. Á hrífandi og persónulegan hátt fléttar hann saman hugleiðingum um tungumál og tilvist, minningar, ást og eigin ímynd, ásamt þeim möguleikum og áskorunum sem framandi menningarheimur felur í sér.

„Ég hef ekki orðið sænskur, jafnvel þótt ég sé ekki lengur sá Grikki sem ég hélt að ég væri. Ég er ekki einu sinni hundrað prósent útlendingur.“

Hallur Páll Jónsson íslenskaði