Hröð heimsending um allt land

Psst... við erum líka bar!

Sendum frítt þegar verslað er fyrir meira en 10.000kr í vefverslun!

Öruggar greiðslur á netinu

Okfruman

Brynja Hjálmsdóttir

1,990 ISK
1,990 ISK

Okfruman er ljóðsaga um uppvöxt, áföll og andlega upplausn. Við fylgjum sköpun manneskju frá fyrsta frumusamruna fram á fullorðinsár og tilraunum hennar til að fóta sig í lífinu. Í ljóðunum eru dregnar upp óvenjulegar og nær martraðarkenndar myndir sem einkennast af frjórri hugsun, leikgleði og vísunum í þjóðsögur, hryllingsmyndir og allt þar á milli. Þetta er frumraun sem íslenskir ljóðaunnendur hafa beðið eftir.

Brynja Hjálmsdóttir er bóksali og skáld úr Reykjavík. Áður hafa skrif hennar birst í bókmenntatímaritum og safnbókum. Okfruman er hennar fyrsta ljóðabók. Bókina prýða teikningar eftir höfundinn.

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Okfruman

Okfruman

1,990 ISK
1,990 ISK