Ókunnugt fólk

Björn Halldórsson

📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim.
🚚 Sendum frítt í póstbox ef pantað er fyrir meira en 10.000 kr.

8,690 ISK
8,690 ISK 0 ISK

Áhrifamikil og nærgöngul saga um brotna fjölskyldu og óuppgerða fortíð þar sem aðalpersónurnar segja söguna hver frá sínum sjónarhóli – líka Danni, skugginn sem ásækir foreldra sína og systkini dag og nótt.

Eftir langa sambúð eiga Vilborg og Elías fátt sameiginlegt annað en þögnina. Yngri sonur þeirra, Funi, er nýfluttur til þeirra aftur eftir vímuefnameðferð, dóttirin Dagbjört upptekin tveggja barna móðir á framabraut. Frumburðurinn Danni er hins vegar fjarverandi og samt nálægur; sár og fyrirferðarmikil minning í lífi þeirra allra.

Sorgin hefur ekki sameinað þau heldur sundrað. Síðan Danni hvarf fyrir tuttugu árum hafa þau gengið hvert sína leið, ófær um að rjúfa þögnina og græða sárin, þar til helgina sem óvænt atvik neyðir þau til að horfast í augu og spegla sig hvert í öðru.

Björn Halldórsson hefur áður sent frá sér smásagnasafnið Smáglæpi og skáldsöguna Stol.

Af hverju Salka?

Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Ókunnugt fólk

Ókunnugt fólk

8,690 ISK
8,690 ISK 0 ISK