Öld ímyndunaraflsins
Bergur Ebbi
5,490 ISK
5,490 ISK
0 ISK
/
Hugmyndaferðalag um nútímann, nýliðna sögu og framtíðina. Gervigreind er mál málanna í dag – geysivíðtækt efni sem Bergur Ebbi skrifar um af smitandi eldmóði, skynsemi og þekkingu. Um leið og hann reifar djúptæk áhrif tæknibyltinga síðustu áratuga á samfélagið og deilir persónulegri reynslu leitast hann við að skýra hvers vegna gervigreind er annað og meira en tækninýjung. Öld ímyndunaraflsins er óður til skapandi hugsunar, töfra tungumálsins og alls þess sem gefur lífinu gildi.
Bergur Ebbi er verðlaunaður höfundur sem hefur með skrifum sínum, uppistandi og fyrirlestrum skipað sér í hóp fremstu samfélagsgreinenda okkar og ræðst hér til atlögu við heitasta málefni líðandi stundar. Áður hefur hann fengist við að kryfja samtímann í tveimur bókum, Stofuhita og Skjáskoti, sem báðar vöktu mikla athygli.
Deila

Þú skoðaðir líka
-
Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!
Öld ímyndunaraflsins
5,490 ISK
5,490 ISK
0 ISK
/