Ópera - Á ferðalagi um sögu listformsins

Magnús Lyngdal Magnússon

5,990 ISK
5,990 ISK 0 ISK
Óperuheimurinn er mörgum hulinn. Í þessu riti eru lesendur leiddir með aðgengilegum hætti í gegnum sögu óperunnar, allt frá Monteverdi til Brittens. Bókin hefur einnig að geyma á annað hundrað tóndæmi sem hægt er að hlýða á samhliða lestri. Þannig hefur höfundur útbúið spilunarlista á streymisveitum til þess að auðvelda lesendum að kynnast mörgum af helstu verkum óperusögunnar.
Fjallað er um sögu óperunnar frá því að formið kom fyrst fram í kringum aldamótin 1600 og fram á 21. öld með fróðlegum hætti. Sagt er frá tugum tónskálda, þar á meðal þekktum höfundum á borð við Händel, Mozart, Rossini, Verdi, Wagner og Puccini auk annarra tónskálda sem mörg hver eru minna þekkt. Ritið er byggt upp á sambærilegan hátt og bókin Klassísk tónlist – Á ferðalagi um tónlistarsöguna sem kom út árið 2024 og vakti mikla athygli.

Magnús Lyngdal Magnússon hefur haft áhuga á klassískri tónlist og óperum frá blautu barnsbeini. Hann hefur viðað að sér umfangsmikilli þekkingu á greininni og fjallað um klassík og óperur í ræðu og riti um áratuga skeið. Magnús hefur ástríðu fyrir því að leiða fólk inn í leyndardóma klassískrar tónlistar og óperu og opna þannig þennan heim fyrir almenningi. Magnús lauk prófi í sagnfræði og íslensku frá Háskóla Íslands og prófi í trompetleik frá Tónlistarskólanum á Akureyri. Hann hefur verið tónlistargagnrýnandi Morgunblaðsins um árabil, fjallar reglulega um klassíska tónlist í Ríkisútvarpinu og hefur kennt á vinsælum námskeiðum um klassíska tónlist og óperur hjá Endurmenntun Háskóla Íslands.

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Ópera - Á ferðalagi um sögu listformsins

Ópera - Á ferðalagi um sögu listformsins

5,990 ISK
5,990 ISK 0 ISK