Opnist í neyð

Dr Julie Smith

5,990 ISK
5,990 ISK 0 ISK
Í lífinu mætum við flóknum áskorunum sem rugla okkur oft í ríminu. Fyrsta skrefið til að takast á við þær er að beina strax huganum í rétta átt. Við vitum samt ekki endilega hvernig best er að gera það og stundum er enginn nálægt til að aðstoða okkur. Þessi bók er því handa öllum: okkur sjálfum þegar við þurfum að velja réttu leiðina, vinum okkar sem búa langt í burtu, börnunum okkar þegar þau fljúga úr hreiðrinu og fjölskyldunni okkar þegar við vitum ekki hvernig er best að orða hlutina.

Klíníski sálfræðingurinn Dr. Julie Smith snýr aftur með handbók fulla verkfærum til að takast á við áskoranir er varða geðheilbrigði og líðan í andartakinu þegar álagið er sem mest og daglega lífið fer á hliðina. 

Metsöluhöfundurinn Dr. Julie kennir hér milljónum lesenda að finna leiðina í gegnum erfiðustu augnablik lífsins frekar en að vera að vinna sig í gegnum áföllin árum eða áratugum eftir að þau áttu sér stað. Hvað ef við getum lært að virkja tilfinningar okkar og vera til staðar svo við getum unnið úr hlutunum og brugðist við aðstæðum á heilbrigðan hátt?

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Opnist í neyð

Opnist í neyð

5,990 ISK
5,990 ISK 0 ISK