Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Örlagaskipið Arctic

4,990 ISK

Höfundur G. Jökull Gíslason

Saga skonnortunnar Arctic er stórbrotin saga örlaga, njósna, misréttis og misþyrminga. Fiskimálanefnd keypti skipið haustið 1939 til að sinna fiskflutningum til útlanda, en það fórst við sunnanvert Snæfellsnes í mars 1943. Þá hafði Arctic lent í miklum háskaförum en alvarlegustu atburðirnir í sögu skipsins voru þegar áhöfnin, íslenskir sjómenn, lenti í úlfakreppu milli hervelda í hryllingi seinni heimsstyrjaldarinnar.

Þegar Arctic lá í Vigo á Spáni árið 1942 nálguðust útsendarar Þjóðverja skipverja og hótuðu að granda skipinu á heimleiðinni ef þeir stunduðu ekki njósnir fyrir þá. Bretar komust á snoðir um þetta og eftir að skipið kom til Íslands var áhöfnin tekin höndum og um síðir send í fangabúðir á Englandi.

Örlagaskipið Arctic byggir ekki síst á breskum leyniskjölum sem nýlega voru gerð opinber og fylgir lesandanum gegnum þessa spennuþrungnu atburðarás sem reyndist áhöfninni afdrifarík. Saga skipverja á Arctic sýnir glöggt hvernig stríðsátök geta bitnað harkalega á saklausum borgurum.

G. Jökull Gíslason er rannsóknarlögreglumaður. Örlagaskipið Arctic er þriðja bókin hans. Hinar fyrri eru Föðurlandsstríðið mikla og María Mitrofanova (2017) og Iceland in World War II – A blessed war (2019, endurútgefin í aukinni útgáfu 2021).