Óskráðar minningar mínar
Katia Mann
📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim.
🚚 Sendum frítt í póstbox ef pantað er fyrir meira en 10.000 kr.
Katia Mann, eiginkona þýska skáldjöfursins Thomasar Mann, varði ævinni í að skýla eiginmanni sínum fyrir umheiminum svo að hann gæti skrifað meistaraverk sín. „Í þessari fjölskyldu verður að vera einhver sem ekki skrifar,“ sagði Katia jafnan þegar hún var hvött til að skrifa endurminningar sínar. Á efri árum féllst hún loks á að segja ævisögu sína.
Úr varð þessi líflega minningabók, Óskráðar minningar mínar. Þar er meðal annars brugðið upp eftirminnilegum myndum af æsku hennar í München, hinu mikla skáldi, eiginmanni hennar, vinum og samferðamönnum þeirra hjóna, hinni fjölskrúðugu Mann-fjölskyldu, flóttanum undan nasistum, dvölinni í Bandaríkjunum og endurkomunni til Evrópu.
Deila

Af hverju Salka?
Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.
Þú skoðaðir líka
-
Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!
Óskráðar minningar mínar