Ótrúleg ævintýri Brjálínu Hansen
3,990 ISK
Höfundur Rán Flygenring, Finn-Ole Heinrich
Pálína Klara Lind Hansen, stundum kölluð Brjálína, er í senn meistaraspæjari, ofurfimleikastúlka og heimsmeistari í brjáli. Hún skilur ekki hvers vegna foreldrar hennar eru að skilja og hún að flytja í plasthús í hinum enda bæjarins, burt frá vinunum og skólanum og sínu fullkomna heimili, kóngsríkinu Brjálivíu. Pálína vill fá sitt gamla líf til baka og hún skal sko ná sínu fram!
Kóngsríkið mitt fallna er fyrsta bókin af þremur í bókaflokknum Ótrúleg ævintýri Brjálínu. Stórkostlega skemmtileg, sorgleg, hjartnæm og hugljúf saga eftir Finn-Ole Heinrich og Rán Flygenring sem hlotið hefur margvíslegar viðurkenningar og verðlaun, meðal annars hin virtu þýsk-frönsku barnabókaverðlaun.
Jón St. Kristjánsson þýddi.