Óttalaus
Lauren Roberts
📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim.
🚚 Sendum frítt í póstbox ef pantað er fyrir meira en 10.000 kr.
Lokahluti hinnar rómantísku og spennuþrungnu sögu um
Paedyn Gray sem hefur slegið í gegn um allan heim.
Hún flýði sem svikari en sneri aftur sem tilvonandi brúður.
Vanmennið, Paedyn Gray, hafði búið sig undir dauðadóm en
ekki bónorð. Hún hafði drepið konunginn og það hvarflaði
hvorki að henni né þegnum landsins að hennar biði hjónaband
með Kitt, syni hans. En hlutverk drottningar býður Paedyn
tækifæri til að sameina Ilyu og skapa konungsríki þar sem
vanmenni og elítur geta lifað hlið við hlið.
Úrslitastundin nálgast og Paedyn á í harðri innri baráttu milli
huga og hjarta þegar hún stendur nú frammi fyrir hinni miklu
Prófraun. Kai Azer berst allan tímann fyrir henni, jafnvel þótt
hann þurfi að bjóða konunginum birginn. Eru hjúskaparheit
nógu sterk til að sameina konungsríki? Eða munu svik rjúfa
þau? Aldrei hefur nokkurt val verið erfiðara … eða hættulegra.
Deila

Af hverju Salka?
Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.
Þú skoðaðir líka
-
Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!
Óttalaus