Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Öxin og jörðin

3,990 ISK

Höfundur Ólafur Gunnarsson

„Öxin og jörðin geyma þá best.“ Þessi fleygu orð réðu í senn örlögum Hólafeðga og íslensku þjóðarinnar á sextándu öld. Einn kaldan nóvembermorgun var Jón Arason biskup hálshöggvinn ásamt sonum sínum tveimur, Birni og Ara. Með því grimmdarlega ofbeldisverki hvarf öll mótspyrna gegn hinum nýja lúterska sið og danska konungsvaldinu á Íslandi. Öxin og jörðin er söguleg skáldsaga um trú og efa, sjálfstæði og kúgun þar sem fjöldi einstaklinga stíga ljóslifandi fram úr þoku fortíðar. Ljós og skuggar koma fram á þeirri mynd sem lifað hefur með þjóðinni um píslarvættisdauða Jóns biskups Arasonar.

Í þessari áhrifamiklu sögu er brugðið birtu á veraldlega höfðingja eins og Erlend Þorvarðarson, lögmann, hinn kvensama Daða í Snóksdal og skörunginn Þórunni biskupsdóttur. Synir biskups þurfa að velja hvort þeir fylgi föður sínum, eigin sannfæringu eða leysi höfuð sitt. Öxin og jörðin er í senn saga þjóðar og grimmra örlaga. Bókin hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2003.