Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk
Uppselt

Refsiengill

4,190 ISK

Höfundur Heine Bakkeid

Þessi vara er ekki fáanleg eins og er

Thorkild Aske snýr aftur til Stafangurs eftir að lík lögreglumannsins Simons Bergeland finnst þar grafið í fjöru. Hann á ekki góðar minningar frá Stafangri. Þar fór líf hans fjandans til og hann missti vinnuna. Fljótlega kemur í ljós að það var kannski ekki góð hugmynd að snúa aftur og gæti jafnvel kostað hann lífið. En hann verður að komast að sannleikanum. Því að ekkert sem gerðist í Stafangri á sínum tíma var eins og hann hélt að það hefði verið. Nú er komið að uppgjöri og refsingum fyrir gamlar syndir.

Mögnuð spennusaga sem hreppti hin virtu Riverton-verðlaun 2021 sem besta glæpasaga ársins í Noregi.

Refsiengill er fjórða bókin í frábærum spennusagnaflokki um lögregluforingjann Thorkild Aske sem er af íslenskum ættum. Fyrstu bækurnar þrjár – Ég mun sakna þín á morgun, Hittumst í paradís og Við skulum ekki vaka – hafa fengið hinar bestu viðtökur íslenskra lesenda.

Norski rithöfundurinn Heine Bakkeid hefur fengið mikið lof fyrir glæpasögur sínar sem hafa verið þýddar á fjölda tungumála.