Rottukóngurinn
Pascal Engman
4,890 ISK
4,890 ISK
0 ISK
/
Hér er á ferðinni margslungin og metnaðarfull glæpasaga sem varpar ljósi á hinar fjölmörgu birtingarmyndir ofbeldis í garð kvenna í nútímanum. Geysiþétt og gríðarvel fléttuð bók eftir höfund af yngri kynslóðinni sem þykir feta í fótspor Hennings Mankell og höfundaparsins Sjöwall og Wahlöö.
Kona á þrítugsaldri er stungin til bana á heimili sínu í Stokkhólmi. Allt bendir til þess að barnsfaðir hennar, meðlimur í glæpagengi og þekktur ofbeldishrotti, sé sá seki. En Vanessu Frank hjá rannsóknarlögreglunni grunar að málið sé alls ekki svo einfalt enda bakslag í MeToo-byltingunni áþreifanlegt og vaxandi fylgi kvenhataranna í stafrænu Incel-hreyfingunni vekur ugg. Og þeir láta sér ekki allir nægja að fá útrás fyrir hatrið við tölvuna …
Pascal Engman (f.1986) hefur sópað að sér verðlaunum og viðurkenningum síðan hann gaf út fyrstu glæpasöguna árið 2017. Meðal annars hlaut Rottukóngurinn bresku Petrona-verðlaunin 2023 og bækur Engmans hafa verið þýddar á meira en 20 tungumál.
Sunna Dís Másdóttir þýddi.
Deila

Þú skoðaðir líka
-
Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!
Rottukóngurinn
4,890 ISK
4,890 ISK
0 ISK
/