Sælkeragöngur um París
📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim
🚚 Áætlaður afhendingartími er 1 - 3 virkir dagar
Ein er sú list sem hefur ávallt skipað stóran sess í lífi Frakka en það er matargerð. Fyrir þeim snýst hún ekki bara um fæðu; hún heldur fjölskyldunni saman, eflir vinatengsl og vekur vellíðan og gleði.
Sigríður hefur búið öll sín fullorðinsár í Frakklandi en þó er gestsaugað glöggt og að þessu sinni leiðir hún okkur um hverfi Parísarborgar sem eru tuttugu talsins. Af einlægri frásagnargleði lýsir hún hverju hverfi fyrir sig, íbúum þess, lífi og sögu. Í lok hvers kafla eru síðan dásemdaruppskriftir að forrétti, aðalrétti og eftirrétti að hætti hverfisins og Parísarbúa.
Silja gengur með móður sinni um borgina og fangar hina einstöku Parísarstemningu með myndavélinni. Nú eru komnar þrjár bækur í flokki Sigríðar og Silju.
Deila

Af hverju Salka?
Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.
Þú skoðaðir líka
-
Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!
Sælkeragöngur um París