Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk
Safnið - Ljóð Lindu Vilhjálmsdóttur
8,990 ISK
Höfundur Linda Vilhjálmsdóttir
Ljóðasafn Lindu Vilhjálmsdóttur geymir allar ljóðabækur hennar frá árabilinu 1990-2022, níu talsins, auk nokkurra ljóða sem birst hafa á öðrum vettvangi eða eru áður óbirt.
Allt frá því að fyrsta bók Lindu, Bláþráður, kom út árið 1990 hafa beinskeytt og meitluð ljóð hennar um samtíð og samfélag, vald og viðhorf, vakið athygli og hreyft við lesendum. Fyrir ljóðabókina Frelsi, sem Linda sendi frá sér árið 2015, var hún tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs.
Inngangsorð bókarinnar skrifar Kristín Eiríksdóttir skáld og í bókarlok er viðtal Hauks Ingvarssonar, bókmenntafræðings og skálds, við Lindu þar sem hún segir frá uppvexti sínum og ævi, skáldskap og skoðunum