Sagan hefst hér

4,890 ISK
4,890 ISK 0 ISK

📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim
🚚 Áætlaður afhendingartími er 1 - 3 virkir dagar

Sagan hefst hér – hjá Ben Foley. Hann er rekinn úr alþjóðlega menntaskólanum í Strassborg. Hann fer heim til sín með skottið á milli lappanna en þá eru foreldrar hans horfnir, blóð á eldhússkápnum og hans bíður miði með undarlegum skilaboðum frá móður hans sem lýkur á: Ekki hringja á lögregluna!

Ben veit ekki sitt rjúkandi ráð, hefur engan til að leita til og engan sem hann getur treyst. Til að bæta gráu ofan á svart er hann grunaður um að hafa myrt foreldra sína. Þeir sem eiga sök á því eru núna á eftir honum og vilja fá eitthvað sem hann hefur í fórum sínum. Ben veit aftur á móti ekki hvað það er. Það eina sem hann veit er að foreldrar hans voru ekki það fólk sem hann hélt að þau væru.

Kevin Wignall hefur skrifað fjölmargar spennusögur sem selst hafa í milljónum eintaka. Sagan hefst hér er fyrsta bók hans sem kemur út á íslensku.

„Frábær spennutryllir sem ég mæli sannarlega með; hröð atburðarás, áhugaverðar persónur og óvæntar vendingar.“ - YRSA SIGURÐARDÓTTIR

Af hverju Salka?

Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Sagan hefst hér

Sagan hefst hér

4,890 ISK
4,890 ISK 0 ISK