Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Sagði mamma

3,690 ISK

Höfundur Hal Sirowitz

agði mamma eftir bandaríska skáldið Hal Sirowitz er óvenjulegt og gáskafullt ljóðasafn þar sem hversdagsleg heilræði eru sett í broslegt samhengi. Efnið kemur kunnuglega fyrir sjónir því margt er líkt með mæðrum og sonum hvar sem er í heiminum. Ást og umhyggja eru auðvitað af hinu góða, en stundum virðist samt of langt gengið.

Bókin kom fyrst út á íslensku árið 2001, hlaut rífandi viðtökur og hefur tvívegis verið endurútgefin. Ljóð höfundarins hafa ratað víða og bækur hans átt miklum vinsældum að fagna bæði í heimalandinu og annars staðar, ekki síst á Norðurlöndum.

Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson íslenskaði