Sár græða sár
Vigfús Bjarni Albertsson
📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim.
🚚 Sendum frítt í póstbox ef pantað er fyrir meira en 10.000 kr.
Í nærveru sorgar. Bók sem eykur innsæið í okkur sjálf og færni til að vera til staðar fyrir einstaklinga, fjölskyldur og ekki síst börn sem eru að takast á við sorg og áföll. Bókin nýtist fagfólki einnig vel.
Í þessari bók sem er sjálfstætt framhald af bókinni Hver vegur að heiman er vegur heim býður höfundurinn Vigfús Bjarni lesandanum með sér í lærdómsferð. Bókin talar til samfélagsins með marglaga hætti, hún ávarpar einstaklinga, fjölskyldur, fagstéttir og síðast en ekki síst þá sem syrgja. Hún varpar fram erfiðum spurningum en um leið kennir hún faglega nálgun í krefjandi aðstæðum og er von höfundar sú að þær nálganir geti reynst vel í torfærum lífsins. Hér er komið inn á sorg barna, áföll sem verða af mannavöldum, harm fjölskyldna, sorg kynslóða og samfélags. En einnig er sérstaklega lögð áhersla á von, sátt og fyrirgefningu; það að gera heilt.
Höfundur hefur unnið við sálgæslu árum saman bæði inni á sjúkrahúsum og í kirkjunni. Hann situr því við lind sorgar og gleði, lind reynslunnar og úr henni eys hann af varfærni og ábyrgð svo að samferðafólkið í lærdómsferðinni geti áttað sig sem best á meðölum sálgæslunnar, möguleikum hennar, en líka styrkleikum sínum og veikleikum – en síðast en ekki síst áttað sig á eigin stöðu í heimi áfalla og úrvinnslu.
Deila

Af hverju Salka?
Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.
Þú skoðaðir líka
-
Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!
Sár græða sár