Síðasta ástarjátningin
Dagur Hjartarson
Við Kristín urðum samferða heim af mótmælunum.
Þögðum upp Tjarnargötu.
„[Eitthvað um blik stjarnanna og myrkrið á milli þeirra],“ sagði Kristín.
„[Eitthvað stolið um undrið sem sundrar stjörnunum],“ sagði ég.
Við kysstumst.
Ungur maður flytur til Reykjavíkur og verður þátttakandi í óvenjulegu verkefni æskuvinar síns. Á sama tíma fellur hann fyrir Kristínu. Tilveran er skáldleg, hvert andartak ort.
Síðasta ástarjátningin er allt í senn falleg, fyndin og spennandi skáldsaga um ástina, listina og lífið.
Dagur Hjartarson hefur áður sent frá sér ljóð og sögur, hlotið Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar og Nýræktarstyrk Miðstöðvar íslenskra bókmennta. Með þessari skáldsögu skipar hann sér á bekk með áhugaverðustu höfundum þjóðarinnar.
Deila

Þú skoðaðir líka
-
Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!
Síðasta ástarjátningin