Sigurður Hansen í Kakalaskála - Nokkur ævintýri úr lífi
Einar Kárason
📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim.
🚚 Sendum frítt í póstbox ef pantað er fyrir meira en 10.000 kr.
Sigurður Hansen í Kringlumýri í Skagafirði er orðinn hálfgerð goðsögn í lifanda lífi. Á efri árum sviðsetti hann Haugsnesbardaga, mannskæðustu átök Íslandssögunnar, í túnfætinum heima með yfir þúsund grjóthnullungum – og opnaði síðan menningarsetur tengt Sturlungu í stórum skála sem áður hýsti minkarækt. En hver er Sigurður Hansen?
Hér fljúga vísur, hér er Siggi nánast farinn fram af þverhnípi á ýtu í blindbyl, hann bjargast naumlega eftir að hafa steypst niður laxastiga, hér segir af smalamennsku í Austurdal í Skagafirði, íslenskum hestum og hreindýrum í Lapplandi, það er dreypt á Kakala „sem mér tekst einhvernveginn stundum að verða mér úti um …“
Einar Kárason skrifar sögu Sigurðar Hansen af alkunnri sagnagleði. Þótt Einar sé Reykvíkingur af vestfirskum ættum finnst honum að leiðarlokum „líka vera kominn vottur af Skagfirðingi í sálina.“
Deila

Af hverju Salka?
Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.
Þú skoðaðir líka
-
Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!
Sigurður Hansen í Kakalaskála - Nokku...