Sjáandi

Ester Hilmarsdóttir

📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim.
🚚 Sendum frítt í póstbox ef pantað er fyrir meira en 10.000 kr.

6,990 ISK
6,990 ISK 0 ISK

Áætlaður afhendingartími er 1 - 4 virkir dagar

📖 Sjáandi – Ester Hilmarsdóttir

Sjáandi eftir Ester Hilmarsdóttur er áhrifarík íslensk skáldsaga þar sem dulúð, ástir og samfélagsbreytingar fléttast saman í ljóðrænni sögu.

🧠 Um bókina

Þegar dularfull spákona úr austri birtist í friðsælum dal í íslenskri sveit fara ævintýralegir hlutir að gerast og allt sem áður var fer úr skorðum. Saman við komu spákonunnar fléttast barátta kotbænda við auðvaldið úr nærliggjandi kaupstað, hrifnæmni fjósastráks, forboðnar ástir heimasætu og förukona sem enginn veit hvort er að koma eða fara. 

Bókin segir frá uppvexti, ást sem er alheimsfasti, vaxtarverkjum nýrra tíma, samstöðu og baráttu fyrir afkomu og verndun náttúrunnar. Harmur og húmor liðast um söguna líkt og áin sem rennur um dalinn – stundum gjöful en stundum brigðul, þar sem auðvelt er að festast í slýinu og missa fótanna.

✍️ Um höfund

Ester Hilmarsdóttir hlaut tilnefningu til Fjöruverðlaunanna fyrir ljóðabók sína Fegurðin í flæðinu en Sjáandi er fyrsta skáldsaga hennar.

✨ Umsagnir

„Það er eitthvað við efni og efnistök sem leiðir hugann til Dalalífs Guðrúnar frá Lundi sem er nú aldeilis ekki leitt að vera líkt við.“ - Steinunn Inga Óttarsdóttir / Skald.is

⭐️⭐️⭐️⭐️⭐️ „Ég bæði hló og grét yfir þessari bók! Persónugalleríið er stórkostlegt, fullt af bæði yndislegum persónum og svo hinum sem maður elskar að hata en eru samt svo mannlegar í brestum sínum.“ - Sesselía / goodreads

🔎 Nánari upplýsingar

ISBN: 978-9935-516-93-0

Af hverju Salka?

Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Sjáandi - Ester Hilmarsdóttir

Sjáandi

6,990 ISK
6,990 ISK 0 ISK