Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk
Uppselt

Sjávarplássið Dalvík

7,990 ISK

Höfundur Jóhann Antonsson

Þessi vara er ekki fáanleg eins og er

Togarinn Baldur var keyptur frá Dalvík til Landhelgisgæslunnar og látinn rista rifur á síður herskipa í þorskastríðinu 1976. Breski sjóherinn óttaðist „fljótandi dósahníf“.

Áhöfn Dalborgar EA fór yfir miðlínuna milli Íslands og Grænlands og var staðinn að verki við ólöglegar rækjuveiðar. Hún var sektuð um borð í danska herskipinu Vædderen og fékk brauðsamlokur afhentar með rukkuninni. Það voru dýrustu samlokur veraldarsögunnar.

Sögurnar eru margar og mergjaðar aftur í aldir. Á Dalvík á útgerð og fiskvinnsla sér sterka hefð og margir frumkvöðlar hafa styrkt byggðina, atvinnulífið og mannlífið með áræðni, frumkvæði og sérhæfðri starfsemi af ýmsu tagi.

Síldarárin eru ljúf í minningunni þegar landað var sitt á hvað á Dalvík og Dagverðareyri. Héraðslæknirinn hafði það hins vegar frekar náðugt því þegar síld veiddist höfðu Dalvíkingar ekki tíma til að vera lasnir.

Bókarhöfundur, Jóhann Antonsson, er Dalvíkingur og viðskiptafræðingur með fjölþætta reynslu af sjávarútvegi. Hann var stjórnandi í fyrirtækjarekstri, sinnti frumkvöðlastarfi og var ráðgjafi stjórnvalda og fyrirtækja um árabil. Hann hefur skrifað fjölda frétta og greina um sjávarútveg og fyrirtæki í Dalvíkurbyggð í héraðsfréttablaðið Norðurslóð og tekið saman efni um sjávarútveg til birtingar í blaði Fiskidagsins mikla á Dalvík.