Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk
Sjö manngerðir sem finna má í bókabúðum
4,490 ISK
Höfundur Shaun Bythell
Bækur Shauns Bythell um lífið í fornbókabúðinni hans í Wigton á Skotlandi hafa slegið í gegn víða um heim. Þar er brugðið upp lifandi myndum af daglegum gestum í bókabúðinni, skrýtna fólkinu sem vinnur þar, kettinum Kafteini og öllu amstrinu sem fylgir lífi fornbókasalans.
Í þessari bók reynir Shaun að átta sig á fólkinu sem ratað hefur í búðina hans á langri bóksalaævi. Heilt yfir finnst honum að viðskiptavinina megi flokka í sjö ólíkar manngerðir. Hnyttnar og snjallar mannlýsingar fornbókasalans gera þessa litlu bók að einstökum skemmtilestri.
Snjólaug Bragadóttir íslenskaði.
„Grátbroslegar lýsingar ... engum er hlíft.“ – Washington Post
„Fornbókasalinn lætur allt flakka með snilldarlegum hætti ... mannfyrlitning í bland við elskulegheit.“ – Guardian